Ath. Þetta skjal er í stöðugri vinnslu.
CARNET
Almennt um Carnet
Lönd í Evrópu sem krefjast
Carnets
Lönd í Vestur-Asíu sem
krefjast Carnets
Lönd í Afríku sem krefjast
Carnets
VEGABRÉF
Lönd í Evrópu sem krefjast
vegabréfsáritunar.
Lönd í Vestur-Asíu sem
krefjast vegabréfsáritunar.
Lönd í Afríku sem krefjast
vegabréfsáritunar.
Amennt um Carnet
Carnet er eitt af þeim fyrirbærum sem "first timers" feila sig oft á og getur orðið til þess að þeir ákveði að fara á gömlu mótorhjóli í stað flotta nýja BMW hjólsins sem þeir sáu í bæklingnum í umboðinu. Carnet er tollapappír sem gerir ferðamönnum kleift að komast hjá því að borga tollayfirvöldum í ákveðnum löndum háar summur í tryggingu. Carnet er gefið út af regnhlífarfélögum bifreiðaeigenda. Þessi félög eru um allan heim og eru FÍB í þessum samtökum.
Carnet er bæklingar með 3-25bls. Ein blaðsíða er fyrir hvert land sem sótt hefur verið um að heimsækja. Á blaðsíðunni eru þrír miðar, einn fyrir "entry", einn fyrir "exit" og einn hlutlaus.
Þær upplýsingar sem ég hef fengið um carnet koma frá sænsku bifreiðasamtökunum, en eins og lög og reglugerðir gera ráð fyrir þá birta þeir lista yfir þau lönd sem krefjast carnets. Listinn segir þó ekki alveg alla söguna því oft er hægt að komast hjá miklum fjárútlátum og skriffinsku, með því að fá upplýsingar hjá öðrum ferðalöngum. Til dæmis hef ég heyrt að carnet og tryggingar séu til sölu á landamærum Sýrlands, en ef hefðbundin leið er valin þarf að leggja út mörg hundruð þúsund krónur og ganga í gegnum mikla pappírsvinnu.
Lönd í Evrópu sem krefjast vegabréfsáritunar:
GREAT BRITAIN, UNITED
KINGDOM OF, Embassy
6 Kensington Court, London, W8
5DL
Tel.: (+44 20) 7 937 32 88
Fax: (+44 20) 7 361 00 05
E-mail: belarus@belemb.freeserve.co.uk
Ambassador: Sadokho Valeriy
Evgenievich
Hef heyrt að það þurfi að panta hótel og gefa upp nákvæma áætlun, þ.m.t. innkomu og brottför úr landinu, til að fá útgefið vegabréfsáritun.
Lönd í Vestur-Asíu sem krefjast vegabréfsáritunar:
Það yndislegasta við löndin fyrir botni Miðjarðarhafs er samstarfsviljinn,
til að mynda hjá tollvörðum. Samkvæmt reglunum þurfa ferðamenn að vera með vegabréfsáritun
og Carnet, en bæði þessi skjöl er hægt að kaupa við landamærin. Ef farin er
heiðarlega leiðin, þýðir það mikil fjárútlát og vesen. Til dæmis þá krefjast
tollayfirvöld í Sýrlandi að 100% af verðmæti farartækisins ef sótt r um Carnet á löglegan hátt, það getur því stundum borgað sig að fá upplýsingar hjá öðrum ferðamönnum áður en farið er út í miklar skuldbindingar sem ekki þarf.