Pistill uppfærður 19.01.2003
Eitt og annað þarf að hafa í huga þegar dekk eru valin fyrir langferðalög á mótorhjólum. Það er mál þeirra sem til þekkja að aðeins tvær dekkjategundir standi undir þeim væntingum sem eyðimerkurfarar gera til grips og endingar dekkja:
Michelin Desert
Michelin T63
Pirelli MT21
Michelin Desert
Michelin T63
Pirelli MT21
Michellin Desert er efst á lista þeirra sem ætla að keyra mikið OFF-ROAD og þurfa á mjög áreiðanlegu dekki að halda. Það kostar víst blóð, svita og tár að koma þeim á felgurnar, en reyndir menn segja að með réttum verkfærum og tækni sé það leikur einn að smella þeim á. Desert dekkinn eru stíf og dæmi eru um að menn hafi hjólað á sprungnu dekki hundruð kílómetra án þess að skemma felgur eða yfirhita kantana. Þessi dekk eru jafn góð í sandi og þau eru vont á malbiki; sagt er að þau séu verst í byrjun, en eftir því sem þau slitni komi þau öll til. Það er mjög algengt að þessi þess dekk þoli allt að 12.000 km akstur og yfirborðshita upp að 50°C, sem kemur sér vel fyrir þá sem eru að hjóla á heitum sandi eða malbiki. Í USA kosta þess dekk um $72 (framan) og $106 (aftan).
Þetta segir framleiðandinn um dekkið:
"Tried and tested on the world’s most gruelling events, Michelin Desert tyres offer maximum protection against abrasive surfaces, superb grip and exceptional reliability on long distances."
Michellin T63 eru með sama munstur og Michellin Desert, en léttari. Þau eru gerð fyrir meiri ROAD notkun og svipar mjög til Pirelli MT21. Þessi dekk eiga að endast í allt að 7-8 þús km. Í U.S.A. kosta þessi dekk um $45 (framan) og $65 (aftan).
Þetta segir framleiðandinn um dekkið:
"Excellent stability and tyre life for small to medium capacity trail bikes riding mainly off road, but still with high levels of wet and dry road grip. Derived from a successful range of desert tyres."
Pirelli MT21 eru næst á eftir Michellin Desert í gæðum. Prófíllinn er ávalur, gúmmíið hart og kubbarnir lágir, sem gerir dekkið að mjög góðu "alternative" dekki fyrir langferðalög. Eins og við má búast af svona dekkjum þá eru þau mjög vont í drullu en drullu góð í sandi. Þessi dekk eru áþekk Michellin Baja, Metzeler Karoo og Bridgestone ED660.
Þetta segir framleiðandinn um dekkið:
"STIFF CARCASS for high stability and cornering precision. Tread pattern OPTIMISED FOR USAGE IN DIRT AND GRAVEL ROADS, cross-country racing and desert tours. SPECIAL OFF-ROAD COMPOUND for off-road lasting performances and knobs tearing resistance."
Þessi kafli er enn í vinnslu.