|
Listi yfir það sem gæti þurft að gera fyrir brottför, það sem var gert eða ekki gert og athugasemdir:
-
Grind fyrir áltöskur á hliðarnar og bögglabera
|
|
Í stað þess að láta smíða grindina hérna heima tók ég þá ákvörðun
að kaupa allt fyrirfram sniðið fyrir Súsí frá Bandaríkjunum. Fyrirtækið sem ég skipti við heitir Happy-trails. Eins og við var
að búast þurfti aðeins að toga grindina til svo hún passaði, en miðað við aðstæður þá var því að búast.
|
-
Setja tvöfaldan standara eða breyta hliðar standaranum.
Sjóða 5cm plötu neðan á standara.
|
|
Tvöfaldan standara keypti ég frá Bandaríkjunum eftir að hafa sett fyrirspurn á sniglavefinn, og ekki
fengið nein viðbrögð.
Varla var heldur við því að búast að einhver sæti með tvöfaldan standara fyrir Suzuki inn í bílskúr. Hann er aðallega hugsaður sem
hjálpartæki ef springur í óbyggðum því erfitt er að koma hjólinu fyrir á steinum ef engir steinar eru til staðar. Almennt nota ég hann ekki,
því það er dauði og djöfull að koma hjólinu upp á standarann.
|
-
Breytingar á rafkerfi: Tengja GPS-ið við rafgeyminn, aflmeiri rafgeymir, hleðslutæki fyrir batterí og fleira.
|
|
Allar breytingar á rafkerfinu fóru í gegnum MÚLARADÍÓ þeir byggðu upp
kerfið á hjólinu samkvæmt mínum hugmyndum og útfærðu þær skv. sinni reynslu. Hugmyndin var að taka með eftirfarandi
tæki og tól: Fartölvu, GSM-síma, GPS-tæki og stafræna myndavél. Þeir hjá Múlaradíó bent mér strax á að orginal
rafgeymirinn væri væntanlega ekki nógu stór til að geta keyrt allt þetta dót í einu og var því fjárfest í auka 12V geymi, sem
staðsettur var í annarri kistunni. Kerfið var sett þannig upp að ég gat hlaðið yfir nótt án þess að straumur væri tekið af
aðalgreyminum, og þannig hefði ég alltaf öruggt start á morgnanna.
|
-
Sterka pönnu og grjóthlíf fyrir mótor
|
|
Ferðalög á mótorhjóli krefjast þess að geymslurými séu vel hönnuð og vel sé
raðað í þau. Til að létta á álkistunum ákvað ég að smíða hólf við hlið mótorsins, sem festast á mótorhlífina. Hugmyndina
fékk ég á vefnum (sjá myndir hér að neðan). Boxin eru smíðuð úr 4-5mm álplötum sem festast á 6mm mótorhlífina. Ég
hafði lítið í höndunum þegar ég byrjaði smíðina, nema hugmyndina eina saman og gerði mér því ílla grein fyrir þeim vandkvæðum
sem svona stykki gæti haft. Þó vissi ég að loftflæði yrði að vera gott og styrkur þannig að víbríngur og grjót hristu boxin ekki í
sundur. Núna veit ég að passa verður að boxin liggi ekki of neðarlega því í beygjum geta hornin á þeim rekist í jörðina. Í þessum
boxum geymi ég öll þau verkfæri sem ég með mér: Tól til að gera við sprungin göt, skrúfur, alla lykla sem ég þarf og margt fleira.
|
-
Stærri kúpu sem brýtur betur vind
|
|
Orgínal kúpan á Súsí er mjög "stælí" en lítil og brýtur ílla vind. Til að redda þessu
fékk ég lánaða kúpuna af gamla '88 dakarnum, en hún er hærri og brýtur betur vind.
|
-
Mýkja upp sæti
|
|
Lykillinn að því að eiga ánægjulegt ferðalag á mótorhjóli er án vafa mýkt sætisins.
Samafara því að láta smíða fyrir mig stærri tank fék ég einnig sent annað sæti. Það sæti var ekki nógu mjúkt og bólstraði
ég það upp á nýtt með efni frá Garra í Kópavogi. Svampinn fékk ég gefins hjá bólstrara á Höfðanum.
|
-
Festa 38L tank á hjólið
|
|
Nýjustu mælingar á stærð tanksins hafa sýnt að hann er ekki 38L, heldur 36L. Tankurinn
small ágætlega á stellið og þurfti aðeins smávægilegar breytingar til að hann kæmist á. Helsta vandamálið við svona stóra tanka er
bensínlokinn, en hann hefur oft tilhneigingu til að lenda neðar en blöndungurinn. Þetta getur orðið til þess að hluti bensínsins
nái ekki alla leið. Ég þurfti aðeins og prófa mig áfram með þennan þátt, en að lokum leystist vandamálið og núna næ ég öllu nema svona 300ml.
sem sitja eftir í tanknum. Tankurinn er vissulega stór, en hugmyndin að baki honum er einföld; ferðalög á framandi slóðum
eru streytuvaldar og með því að draga úr áhyggjum af bensinleysi er einum streytuvaldinum færra. Margir langferðalangar hafa
sett upp bönd fyrir auka plastbensínbrúsa, en ég ákvað að sleppa svoleiðis leiðindum og halda mig við STÓRA tanka í staðinn.
|
-
Smíða/kaupa farangursgrind framan á hjólið
|
|
All nokkra hef ég séð með poka festa hliðina á tanknum. Mér fannst þess ekki
þörf hjá mér, en fyrir þá sem eru að henda upp búnaði á stuttum tíma getur þessi möguleiki verið ágætur. Enn aðrir fara alla leið
og smíða litla grind fyrir ofan framljósið, sem nýtist þá sem geymsla fyrir léttari farangur.
|
-
Olíuhitamæli - nauðsynlegt á torfærum hægum leiðum
|
|
Þetta er eitt af þeim hlutum sem ég trassaði að setja upp og á eflaust eftir að
bölva sjálfum mér einn góðan veðurdag fyrir það. Annars var hugmyndin sú, að setja hitaleiðandi vír utan um rörið sem liggur frá
mótornum og inn í kælikerfið og þannig fylgjast með þeim breytingum sem ættu sér stað á hitastigi olíunnar.
|
-
Koma upp búnaði sem festir dekk við gjörð - í þeim tilfellum
sem þarf að hleypa úr dekkjum.
|
|
Þetta var helst hugsað fyrir þær slóðir þar sem ég þarf að hleypa lofti úr dekkjunum.
Varla kemur til þess og því lét ég þetta sitja á hakanum.
|
-
Bæta við tengi á bensínleiðslu sem auðveldar að taka
tankin af og fylla á prímus
|
|
Fátt er um fína drætti heima á Íslandi, í þessum efnum. Ég spurðist fyrir
en enginn gat hjálpað mér. Ég sá svona tengi á netinu en fannst engin ástæða til að panta fleiri þúsund króna
stykki sem yrði aðeins notað nokkrum sinnum. Ég tók því ákvörðun um að losa bara hosuklemmuna í hvert sinn sem
tankurinn fer af.
|
-
Setja auka bensínsíu milli tanks og blöndungs
|
|
Ég komst aldrei svo langt að setja þessa síu, en í þeim tilfellum þar sem járntankar eru orðnir
ryðgaðir hún er nauðsynleg. Í stað þess að nota síu
mun ég fylgjast með hvað fer ofan í tankinn. Í bensínlokanum á tanknum er lítil sía sem ætti að taka það helsta sem ekki ætti
að berast niður í blöndug.
|
-
Athuga með að hækka stýrið
|
|
Orgínal stýrið var látið fjúka og JHM-sport lét mig fá annað. Það var mun beinna
sem gerði það að verkum að betra var að standa og hjólið lét mun betur á möl.
|
-
GPS haldari
|
|
R.Sigmundsson, umboðsaðili Garmin á Íslandi, varð mér út
um RAM GPS festingu sem ég festi á stýrið. Þótt ótrúlega
megi virðast þá haggast RAM-inn ekki á stýringu þó að ekið
sé yfir mjög vont undirlag. RAM-inn hefur einnig þann kost
að hann er hægt að hreyfa til og stilla afstöðu þannig að
henti aksturslagi.
|
-
Athuga með gírhlutföll, hugsanlega þarf að lækka þau
|
|
Vegna þess að ég bjóst ekki við að þetta yrði nokkuð vandamál, fór ég ekki að huga að auka
tannhjólum fyrr en nokkrum vikum fyrir brottför. Ég hefði átt að byrja fyrr, því mér tókst ekki að verða mér út um þau tannhjól sem ég
hafði haft augastað á - 14tennur og 16tennur að framan.
|
-
Stýrisdempari
|
|
Stýrisdemparar hefðu reynst vel, en þeir eru dýrir og því lét ég þá neðst á listann.
|
-
Taka út fjöðrun með hjólið full lestað.
|
|
Þetta var gert fljótlega eftir að allt var komið á hjólið og auljóst var að ég
þyrfti að stífa aftur demparann. Gormurinn var skrúfaður í botn og þar við látið sitja. Engar frekari aðgerðir voru
framkvæmdar til að stífa demparana.
|
Varahlutir:
- Olíusía (3stk)
- Loftsía (1stk)
- Legur í fram og aftur gjörð
- Auka keðju
- Bremsuborð aftan og framan.
- Bremsuhandfang (1stk)
- Kúpplingshandfang (1stk)
- Kúpplingsbarki (1stk)
- Inngjafarbarki (1stk)
- Innsogsbarki
- Mótorolía (2L)
- Slöngu (aftan og framan)
- Ventlahús á slöngu (2stk)
- Ventlar (4stkI
- Bætur, felgujárn og pumpa
- Frampera (1stk)
- Þrýstingsmæli
- Öryggi (helling)
- WD-40
- Hellingur af boltum og róm.
- Viðgerðarefni fyrir járn
- Viðgerðarefni fyrir tank
- Sterkt tape
- Rafvirkja tape
- Stekkibönd - margar tegundir
- Rafmagnsvíra
- Rafmagnstengi
Flottar hugmyndir
- Statíf til að geyma auka kúpplinga- og bremsuhandfang.

- Hólf á pönnu til að geyma vatn, verkfæri eða eitthvað þungt.
- Sand stop - Fínmöskva járnnet sem kemur í staðinn fyrir orginal
loftsíulok.

Teygjunet yfir tankinn - virkar vel þegar þarf að geyma
hanska, kort og annað lauslegt
|