HU bækur

HORIZONS UNLIMITED

Vefur fyrir þá sem ferðast á mótorhjóli, spjallvefur, búð og margt fleira.

Flestar bækurnar sem hér koma við sögu er hæg að kaupa hjá HU. 

Bækur og kort

Undanfarin ár hef ég safnað bókum og kortum um ferðalög erlendis.  Mest er um mótorhjólabækur, en einnig fjallgöngubækur.  Ég er meira en til í að veita aðgang að þessum bókum, en varla tími ég að lána þær.


Áhugaverðar mótorhjólabækur

Þetta eru þær bækur sem ég á, en ég mun nefna það sérstaklega ef ég á ekki bækurnar sem verða birtar hér.

 

Chris Scott, 1996: Desert travels. Traveller's bookshop, 251 bls. (ISBN 1874472 505)

Sögur úr eyðimörkinni.

Chris Scott, 2000: Sahara overland. Trailblazer publications, 544 bls. (ISBN 1-873756-26-7)

Uppflettibók fyrir þá sem hyggja á Sahara ferðalag, bæði er fjallað um 4WD og mótorhjól.  Farið er í útbúnað, hjólið, hvað þarf að varast, fjallað um leiðir, menningu, jarðsprengjusvæði, staðsetningatækni og margt fleira.

Chris Scott, 2001: Aventure motorcycling handbook.  Trailblazer publications, 288 bls. (ISBN 1-873756-37-2)

Þessi bók er í raun styttri útgáfa af Sahara overland og mun almennari.

Ted Simons, 1980: Jupiter's travels. Penguin, 447 bls. (ISBN 0-14-005410-3)

Þessi maður er legend í ferðamálafræðunum.  Þessi bók kom í kjölfari RTW ferðar á áttunda áratugnum.  Núna (2001-2002) er Ted aftur á faraldsfæti og er hægt að fylgjast með honum á heimasíðunni hans.

William Carroll, 1995: Two wheels to Panamá, 144 bls. (ISBN 0-910390-40-1)

Þessi bók er nokkuð sérstök og varla meira en bara skemmtilegur atburður.  Fyrir þá sem ætla á ferðalög í Mið-Ameríku er þessi bók góður stökkpallur.

Jonny Bealby, 1998: Running with the moon, 334 bls. (ISBN 0-7493-2098-2)

Alveg frábær bók.  Jonny missti unnustu sína skyndilega þegar þau voru að ferðast í Kashmir.  Í tvö ár syrgði hann hana, og til að brjóta upp líf sitt og þar með talið sorgina ákveður hann að fara á mótorhjóli til Afríku.  Vinur hans, Neil, fer með honum, en eftir nokkra kílómetra í Túnis dettur Neil og er sendur heim með brotna löpp.  Jonny heldur því áfram einn.  Bókinn segir frá einstöku hugrekki, ævintýraþrá, rómantík og ást og heldur manni vel við efnið.  Frábær lestning fyrir þá sem hafa gaman að ferðasögum.  "Af litlum neista verður oft mikið bál", og þessi bók kveikir gjörsamlega í manni.

Robert M. Pirsig, 1984: Zen and the art of motorcycle maintenance , 380 bls. (ISBN 0-553-27747-2)

Þessi bók fjallar í raun ekki um mótorhjólaviðgerðir, heldur meira það andlega ástand sem þarf að rýkja þegar farið er í viðgerðir/viðhald á mótorhjólum.

Eins og er er ég að lesa bókina og þegar því líkur verður gefin nánari umsögn.

Dr. Gregory W. Frazier, 1994: Motorcycle sex or Freud would never understand the relationship between me and my motorcycle, 143 bls. (ISBN 0-935151-19-2)

Þessa bók hef ég ekki lesið, var bara rétt að fá hana í heldur.  Dr. Gregory er þekktur í mótorhjólageiranum fyrir ferðalög sín um heiminn.

Robert Edison Fulton, Jr., 1996: One man caravan, 275 bls. (ISBN 1-884313-05-1)

Fulton ferðaðist um 22 lönd á 18 mánuðum árið 1932.  Fararskjótin hans er Douglas Twin.  Þessi bók er á leslistanum hjá mér.

Helge Pedersen, 1998: 10 years on 2 whells, 208 bls. (ISBN 0-944958-38-9)

Þessi er algjör töffari.  Eftir að hafa ferðast um Afríku í nokkra mánuði ákvað hann að taka sér aðeins stærra verkefni fyrir hendur og ferðast um heiminn.  Það tók hann 10 ár að ljúka verkefni sínu.  Þessi bók er algjör snilld, mikið af fallegum myndum og texti í lágmerki.  Flott bók sem allir mótorhjólaunnendur ættu að eiga.

Jim Rogers, 2000: Investment biker around the world, 402 bls. (ISBN 0-471-49552-2)

Eflaust áhugaverð bók, hef bara ekki lesið hana ennþá.  Titillinn er ekkert rosalega áhugaverður, en bókinn fjallar um Jim Rogers og viðskipti hans um heiminn.


Áhugaverðar bækur fyrir ferðalanga.

Lonely planet, 2000: Russia, Ukraine and Belarus, 976bls.  Ritstjórar Ryan Ver Berkmoes, Anthony Haywood, Steve Kokker og fleiri.  (ISBN 0-86442-713-1)

Lonely planet, 1999: Norway, 448bls. Ritstjórar  (ISBN 0-86442-654-2)

Lonely planet, 2000: Australia, 1056 bls. Ritstjórar  (ISBN 1-86450-068-9)

Lonely planet, 2002: Egypt, 584 bls. Ritstjórar Andrew Humphreys og Siona Jenkins. (ISBN 1-86450-298-3)

Lonely planet, 2002: Bulgaria, 304 bls. Ritstjóri Paul Greenway. (ISBN 1-86450-148-0)

Lonely planet, 2001: Romania and Moldova, 432 bls. Ritstjórar Nicola Williams og Kim Wildman. (ISBN 1-86450-058-1)

Lonely planet, 2001: Morocco, 544 bls. Ritstjórar Matt Fletcher, Joyce Connolly, Frances L. Gordon og Dorinda Talbot.  (ISBN 0-86442-762-X)

Lonely planet, 1997: Hungary, 417 bls. Ritstjóri Steven Fallon. (ISBN 0-86442-452-3)

Lonely planet, 2002: Libya, 264 bls. Ritstjóri Anthony Ham. (ISBN 0-86442-699-2)

The Bradt travel guide, 2000: Mali, 220 bls.  Ritstjóri Ross Velton.  (ISBN 1-898323-93-3)

Julian Perry, 1995: The mountains of Bulgaria, a walker's companion, 144 bls. (ISBN 1-871890-58-6)

Richard Knight, 2001: Trekking in the Moroccan Atlas. Trailblazer publications, 256 bls. (ISBN 1-873756-35-6)

Kort

Evrópa

Eastern Europe 1:2 millj., Euromap 1997.  (ISBN 3-575-33229)

Búlgaria, Eistland, Lettland, Litháen, Moldovía, Rúmenía, Úkraína, Hvíta-Rússland og vestur-Rússland.  Ágætis ökukort, en mjög erfitt er að greina breytingar á landslagi.

Bulgaria 1:800 000, Euromap 1998.  (ISBN 3-575-33297-5)

Michelin 970, Europe 1:3 millj. Michelin travel publications 2002.  (ISBN 2-06-100104-1)

Ukraine 1:1 millj., Institut geographique national 1994.

Afríka

Michelin 954, Africa North east 1:4 millj. Michelin travel publications 2000. (ISBN 2-06-700954-0)

Allir sem fara til norðaustur Afríku nota þessi kort sem yfirlitskort.  Þau eru auðlesin og gefa til kynna sandöldur, graslendi og jafnvel lindir.  Oft eru viðaukar við lindarmerkingarnar, getið er um hreinleika vatnsins og dýpi niður á vatnsyfirborð.  Strikuð með 4° millibili eða u.þ.b. 440km.

Michelin 953, Africa North and west 1:4 millj. Michelin travel publications 2000/2001. (ISBN 2-06-700953-2)

Allir sem fara til norðaustur Afríku nota þessi kort sem yfirlitskort.  Þau eru auðlesin og gefa til kynna sandöldur, graslendi og jafnvel lindir.  Oft eru viðaukar við lindarmerkingarnar, getið er um hreinleika vatnsins og dýpi niður á vatnsyfirborð.  Strikuð með 4° millibili eða u.þ.b. 440km.

Michelin 959, Morocco 1:1 millj. Michelin travel publications 2000/2001. (ISBN 2-06-700959-1)

Kortið er í raun 6 kort: Morocco og Vestur-Sahrar (1:4 millj.), Morocco (1:1 millj.), Casablanca og Rabat (1:600 000), Le-rif, Meknes og Fés (1:600 000), Moyen-Atlas (1:600 000) og Marrakech (1:600 000).  Aðeins Morocco og Vestur-Sahara kortið er strikað sem er mikill galli.

Michelin 958, Algeria og Tunisia 1:1 millj. Michelin travel publications 2000/2001. (ISBN 2-06-700958-3)

Í raun 5 kort: Algeria og Tunisia (1:1 millj.), Région de Tlemcen (1:500 000), Environs D'oran (1:300 000), Région D'alger et Kabylie (1:300 000) og Région de Tunis (1:500 000).  Kortin eru ekki strikið og aðeins ætluð sem aksturskort.        

Africa North East 1:4 millj., Euromap 1999. (ISBN 3-575-33209-6)

Kortin frá Euromap eru ekki ekki eins auðlesin og Michelin kortin.  Greint frá lindum og áhugaverðum stöðum fyrir ferðamenn.  Strikuð með 2° millibili eða u.þ.b. 220km.

Africa North West 1:4 millj., Euromap 1998. (ISBN 3-575-33210-X)

Kortin frá Euromap eru ekki ekki eins auðlesin og Michelin kortin.  Greint frá lindum og áhugaverðum stöðum fyrir ferðamenn.  Strikuð með 2° millibili eða u.þ.b. 220km.

Niger 1:2 millj., Institut geographique national 1993.

Kortið gefur upp fleiri leiðir innan Niger en t.d. Michelin 953.  Á kortið eru merktar hækkanir, þ.e. háar sandöldur eða brött klettabelti.  Lindir merktar inn en ekkert sagt um þær að öðru leiti.  Strikað með 2° millibili en mælingarnákvæmni niður í 1° , eða 110km.

Mali 1:2 millj., Institut geographique national 1993

Kortið sýnir fleiri leiðir innan Mali en t.d. Michelin 953.  Bensínstöðvar eru merktar inn sem og öll önnur þjónusta sem ferðamenn þurfa.  Strikað með 2° millibili eða u.þ.b. 220km.  Grunnflötur kortsins er dökk grænn og gæti orðið eftitt að lesa á það í rökkri og slæmu skygni.

Mauritania 1:2,5 millj., Institut geographique national 1993

Kortið sýnir fleiri leiðir innan Máritaníu en t.d. Michelin 953.  Engar bensínstöðvar eru sýndar og takmarkaðar upplýsingar fyrir ferðamenn.  Strikað með 2° millibili eða u.þ.b. 220km. 

Égypte 1:1 millj.,  Institut geographique national 2002

Í raun 4 kort: Egyptaland (1:5 millj.), 30 lengdargráða til 35 lengdargráðu (1:1 millj.) en Egyptaland nær að 25 lengdargráðu, Cairo (1:15 000) og Luxor-Karnak-Thebes formminja kort (1:20 000).  Lítið gert úr lindum, engar bensínstöðvar