Ár: Dagar: Kl: Mín: Sek:

... síðan Geokobbi kom heim úr ferðinni.

Stutt um mótorhjólaferðina

 

Þann 25 ágúst hélt ég af stað í 3 mánaða ferðalag sem tók mig til 12 landa: Færeyjar, Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Litháen, Hvíta-Rússland, Úkraínu, Rúmeníu, Búlgaríu, Grikkland, Tyrkland og Ítalíu. Þrettánda landið er að vísu Suður-Afríka, en ég tel það ekki með hér því þá var ég í vinnunni.

Ég var einn á ferð og var leytast við að klifra fjöll og keyra um, auk þess að hitta annað mótorhjóla- og ævintýrafólk. Til að verða ekki of einmanna komu María og Erna María til mín þegar ferðin var hálfnuð og áttum við góða tíu daga í Grikklandi.

Skipulagning ferðarinnar stóð yfir frá því á haustdögum 2001, en þó með hléum, uns haldið var af stað. Í upphafi var skipulagningin eingöngu bundin við bókalestur og vef-surf, en þegar mótorhjólið kom á götuna snérist skipulagningin meira um að koma hjólinu í góðan ferðagír.

Við skipulagningu svona ferðar þarf að hafa mörg smáatriði á hreinu. Því er nauðsynlegt að komast í kynni við ferðalanga sem hafa farið um svæðin sem fara á til. Fljótlega eftir að ég hóf að surfa á vefnum fann ég Horizons Unlimited dot com, en það er vefur fyrir þá sem ferðast á mótorhjólum og 4x4. Kíkið á hann, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.

Amennt efni

    
Mótorhjól
Linkasafn
Bækur og kort
Fjallabrölt
GPS
Dekk
Ferðaskjöl
Breytingar og varahl.
 

Myndir

Suzuki DR650
Álkassar málaðir
Seyðisfjörður
Færeyjar
Noregur
Galdhopiggen í Noregi klifinn
Köben
Litháen
Hvíta Rússland
Úkraína
Hoverla í Úkraínu klifinn
Rúmenía
Rúmenía-Chris
Rúmenía-moldov
Afríka
Grikkland-fyrri hluti
Grikkland- Frí
Grikkland-seinni hluti
Aþos-fjall
Hellaferð í Etnu
Ég fíla Grikkland!
Ekið á Mt. Etnu
Súsí sett í skip
    

Bakhjarlar

 

R.Sigmundsson [heimasíða]
Suzuki-umboðið [heimasíða]
B.M. Vallá [heimasíða]
Hjá Krissa - dekkjaverkstæði
ND á Íslandi [heimasíða]
Swatch
JHM-sport [heimasíða]
Múlaradíó
Hátækni [heimasíða]

Súsí í mótun

 

Hér er Súsi enn í Suzuki umboðinu.


Grófari dekk að aftan og framan, 36L tankur, sérsmíðað sæti, panna af DR600 '88, framkúba af DR600 '88, GPS ram-festing, ökusíriti frá RT-tækni, öryggjabox frá Múlaradíó, stálstýri frá JHM-sport


Álkistur og bögglaberi, centerstand, sérsmíðuð verkfærabox við mótor, Tanktaska, vatnsheldur poki á bögglabera.