GEOKOBBI.COM
>
Þjórsárver 2006
>
5 dagur
Þjórsárver 17-22 júlí 2006
Um nóttina rigndi nokkuð og því allt blautt um morguninn. Hér erum við að taka dótið saman á milli skúra.
Skálinn í Nautöldu.
Blautakvísl vaðinn. Handan árinnar eru Oddkelsver.
Myndin er tekin í Oddkelsverum. Takið eftir skítnum í forgrunni. Hér voru heiðargæsirnar rétt áður en við komum á svæðið. Rétt eftir að ég tók þessa mynd sáum við þúsundir af gæsum í fjarska. Um leið og þær urðu varar við okkur hurfu þær.
Hádegismatur var borðaður undir þremur tjöldum.
Tjaldað í Tjarnarverum. Seinasti tjaldstaður ferðarinnar.
Dagurinn var blautur og skórnir rakir eftir því.
Seinasta kvöldið var gengið niður að Bólstað. Leiðin inn að Bólstað er vörðuð frá Þjórsárdal. Þetta er gamla leiðin yfir sprengisand. Ef vaðið yfir Þjórsá var ófært við Sóleyjarhöfða þurfti að ríða upp að Jökli og fara svipaða leið og við komum gangandi. Í bakgrunni er Sóleyjarhöfði.
Bólstaður er ekkert annað er ágætist hesthús í dag.