|
Við Álftavatn áðum við og tókum af klárunum. Í bakgrunni eru Kaldaklofsfjöll í Torfajökli. Þegar okkur bar að garði voru túristar að koma úr baði í stærsta baðikari á svæðinu - Álftavatni. Mikið af fólki var að labba Laugarveginn og streymdu hóparnir í skálann á þeim 20mín sem við stoppuðum. |